Framleiða og framleiða !!!!!!!.

Ríkistjórnin hefur nokkra sagnfræðinga innanborðs, en sem betur fer ekki marga hagfræðinga. Forsætisfrúin ætti að biðja þá, þ.e. sagnfræðingana, að skoða hvernig Svíar komust efnahagslega sterkust þjóða frá heimskreppunni 1929-1932. Wigfors kenningin segir einfaldlega betra að ríkisjóðurinn sjálfur framleiði eldspítur sem seljast þótt síðar verði og veiti atvinnu, í stað þess að fylgja kapítalískum niðurrifs og óreiðukenningum sem ævinlega fara með lífskilyrði þjóða á ystu nöf í kreppu.

Farið nú að stjórna vitrænt vinstri gæskur, forðist Sturlunga og burtu með svartnættið, uppþot, niðurrif og gerið allt til að efla og styrkja atvinnustigið.


Niðurif og nornaveiðar náttúruleysingja.

fish.jpgRán­yrkja felst í því að gæði jarðar eru of­n­otuð svo að þau endur­nýjast ekki, segja Náttúruleysingjarnir, gott og vel, en hvers­vegna berjast þeir hérlendis fyrst og síðast gegn nýtingu endurnýjan­legrar orku.

Ekki er það rán­yrkja!. Skildi það vera vegna þess hún færir þjóðinni grund­vallar­auðæfi? ekki er það slæmt?.

Skildi það vera vegna þess að orku­iðnaðurinn  er verðugur and­stæðingur og hag­kvæmt er að hafa við hann þrætu­bók. Þangað er hægt að sækja aur í meiri og meiri rannsóknir á líf­ríki landsins með  óbil­gjörnum kröfum, láta látum og brigslum.

Sam­kvænt fjár­lögum kostar það ríkis­sjóð um 3 miljarða króna á ári að halda úti allskonar náttúru­eftir­liti, í allgjöru atvinnubót og skötulíki.

Þetta er sama upp­hæð og kostar að reka Stykkis­hólms­bæ í fimmtán ár. Heldur hefði ég viljað sjá þessa aura fara í músík hús í Reykja­vík á hverju ári.


Náttúruleysingjar Íslands gera hervirki í Köbenhavn.

Það er forkastanleg að múgsefjunarbatteríum af svo afleitum stofni sem  uppvaktar eru af óvönduðum öfga uppeldis kommum hér á Íslandi og öðrum nytsömum en auðtrúa aðdáendum listaspíra sé plantað í  anarkista í útlöndum svo þeir framkvæmi hervirkin sem kommarnir vildu gjarnan gera sjálfir en hafa ekki kjark til vegna uppeldis í verksmiðju framleiddum nælon fötum og umfaðmaðir og bornir til mans af kapitalisku foreldri. Þeir ættu að skammast sín sem ábyrgðaraðilar árásarinnar á sendiráð Íslands.

Þrætubók náttúruleysingjana, sem er orðin framhaldssaga er fjallar endalaust um að framkvæmdarósköpin á Austurlandi sé örlagavaldurinn að hruninu. Enn ný af nálinni heil kvikmynd náttúruleysingjana sem var gerð til að skapa meiri þrætur og er beint gegn fólkinu í landinu.

Gerð af fólki sem framfleytir sér með skáldastyrkjum eða erfðagóssi.

Allar slíkar þrætubækur valda aðeins brestum í sálarkytru  nytsamra sakleysingjanna og skapa eyrnaverk, tannverk, magaverk og að lokum hausverk, síðan sálarverk tómleikans í miklum og auknum tilvistarvanda anarkista í öllum ríku löndum, meira segja í Danaveldi sem nú enn einu sinni er á leið til fátæktar.

Þeir ættu að skammast sín vegna ábyrgðar á árásinni á sendiráð Íslands í Köbenhavn.



mbl.is Unnu spjöll á sendiráði Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helg verða jól.

getfile_php_943009.jpgEr nokkuð á því að græða að ræða þetta frekar Ögmundur?, ég verð að fara að baka eitthvað annað en tómt tjón fyrir Jólin kære ven.

Ögmundur vill uppgjör Iceave strax.

Hér eru Georgs fræðin  í hnotskurn, framsett af örgum Ögmundi en íhaldsframsókn sleikir sennilega út um af hrifningu.

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir að það sé staðreynd að flestir, ef ekki allir, þingmenn hafi komist að niðurstöðu í Icesave málinu. Hann vill því kjósa strax um málið því frekari tafir á Alþingi þjóni engum sýnilegum tilgangi.

Ögmundur er engum líkur, frekar en Georg Bjarnfreðarson.
Því ekki að undra að Morgunblaðið líti á hann sem Messías íslenskra stjórnmála og vilji allt til vinna að hann auðgi sem um muni hugmyndasmíðar sjálfstæðismanna.

„Frekari gögn kynnu vissulega að varpa ljósi á málið" segir Ögmundur. „Það breytir þó ekki því að samningurinn liggur fyrir undirritaður, lagafrumvarp er á borðum Alþingis í samræmi við þennan undirritaða samning, sem þorri stjórnarmeirihluta er staðráðinn í að samþykkja og stjórnarandstaða að hafna," segir þingmaðurinn í pistli á heimasíðu sinni um stöðu Icesave málsins á Alþingi. Frekari tafir þjóni engum tilgangi".

Ögmundur gagnrýnir aðkomu stjórnarliða, stjórnarandstöðu og fjölmiðlafólks að málinu. „Það er staðreynd að Alþingi hefur reynst ófært um að koma sameinað að lausn vandans, bæði vegna þess hvernig að málinu hefur verið staðið af hálfu stjórnarmeirihlutans og einnig vegna hins að stjórnarandstöðunni hefur ekki tekist að rísa yfir sjálfa sig og taka á málinu óháð flokkspólitískum hagsmunum. Fjölmiðlafólk hefur því miður alltof margt skipst í fylkingar eftir slíkum landamærum."

Ég spyr

Hvað er að hjá þingmanninum?, eru allt tómir amlóðar í kringum hann og vafstrið?.


Það væri nær að gráta margt annað en fæðingarorlof.

c_documents_and_settings_jakobina_olafsdottir_my_documents_myndir_my_pictures_k0842668_829274_927014.jpgHvað er í veði ef fæðingar orlofs greiðslur eru lækkaðar?, er það einhver vá?.
Sem fimm barna faðir og fóstri fleiri sem aldrei fékk krónu fæ ég ekki skilið vælið.
Ég hefði haldið að það lægi beint við að fella þennan lúxus niður að fullu meðan verið er að krafla sig uppúr drullupollinum.
Ekki var hikað við að kremja saman kjör eldri borgara og engin þingmaður hefur lýst yfir áhyggjum þess vegna.

mbl.is Greiðslur í fæðingarorlofi lækkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagsmálaráherrann verður að fara að vakna.

511475a.jpgEru þingmenn virkilega svo einfaldir að halda að okkar ofalda bankakerfi sem stjórnvöld tryggja bæði með axlaböndum og belti gegn hagsmunum almennings, vinni að raunhæfum aðgerðum til að lámarka skaðann sem bankarnir og ríkisvaldið hafa valdið þjóðinni. Hér þarf valdboð stjórnvalda á sama hátt þau beitta hinn almenna mann valdboðum til hægri og vinstri um þessar mundir, svo sem eldri borgara í skatta og tryggingarmálum.

Félagsmálaráðherrann virðist ekki hafa áttað sig á að bankarnir keyrðu sig í þrot og settu heimsmet í glannaskap með óbeinni hjálp stjórnvalda með athafnaleysi sem dró ísl. efnahag niður að feigðarfeni. Evran rúmlega tvöfaldaðist verði, þetta var ekki venjuleg gengisfelling og eða verðbólguþróun.
þetta var gjaldþrot bankakerfis með ríkulegri aðstoð og frumkvæðis stjórnvalda sem í framhaldi á og verður að skila lánakjörum til baka að upphaflegum forsendum.

Ofangreind rök voru notuð fyrir setningu neyðarlaganna þar sem innistæður, ótakmarkaðar, voru tryggðar af ríkissjóði.
Spurningin sem Félagsmálaráðherrann verður að svara er hvort Neyðarlögin leiði ekki af sér það andlag að óeðlileg hækkun skulda vegna hrunsins skuli greidd af sama tryggingarsjóði. Reglur stjórnarskrár um jafna stöðu fólksins setja skorður á hve langt má ganga í mismunun.
mbl.is Gagnrýna hægagang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarlögin virðast halda.

300009a.jpgÞá er runnin upp huggun harmi gegn að Neyðarlögin virðast réttarfarslega viðunandi gerningur.

Það boðar alla vega betri tíð og rénandi svartnættis og málskrúðskylmingar, þá sérstaklega á þrætubókarsetrinu við Austurvöll.

Til hamingju þjóð og þing.


mbl.is Sjö úrskurðir Íslandi í hag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styðjum S.Á.Á. til viðnáms við vímuefnabölinu.

517416a.jpgFrjálshyggjan er á enda runnin og einkenni hennar, fráhvarf frá mjúkum mannlegum gildum, friðhelgi einkalífsins, almennum tryggingarréttindum og jöfnuði milli landsmanna skilja eftir mikil sár og erfiðar afleiðingar í þjóðarsálinni.

Þess vegna er krafa allra landsmanna sem lifa við raunverulega jarðtengingu við fósturjörðina að stjórnmálamenn einhendi sér í raunverulega vitræna rökræðu um styrkingu varna í baráttu þjóðarinnar við afleiðingar vímuefnavandans og grundvallaratriði í því varnarstríði er að tryggja sjúkrahúsinu að Vogi umsamið og nægilegt rekstrarfé.

SÁÁ boða til útifundar á Austurvelli í dag 15. desember klukkan 17 og skorar á okkur öll að mæta og sýna þannig samstöðu. sína með baráttu samtakanna gegn áfengis- og vímuefnavandanum, Fjölmennum!!!!!!!. 

 


mbl.is Útifundur SÁÁ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkfræðingar pissa stundum uppí vindinn. Lánið hans Friðriks

Þorbergur Steinn Leifsson skrifar stórfurðulega grein í Mbl í dag og býsnast yfir      >> "Hvernig geta elstu og reyndustu athafnamenn landsins ætlast til að aðrir taki ábyrgð á afleiðingum af rangri ákvörðun þeirra".

Maður er verkfræðingur sem virðist ekki hafa áttað sig á að bankarnir keyrðu sig í þrot og settu heimsmet í glannaskap með óbeinni hjálp stjórnvalda með athafnaleysi sem dró ísl. efnahag niður að feigðarfeni. Evran rúmlega tvöfaldaðist verði, þetta var ekki venjuleg gengisfelling. þetta var gjaldþrot bankakerfis með aðstoð stjórnvalda sem í framhaldi á skila lánakjörum til baka að upphaflegum forsendum.

Ofangreind rök voru notuð fyrir setningu neyðarlaganna þar sem innistæður ótakmarkað voru tryggðar af ríkissjóði.

Réttlætið hlýtur líka jafnræðisreglum stjórnarskrár.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband