Af hverju lentuð þið í hálvelgju og hiki landsbyggðarmenn?.

Hver hefur ekki hlustað á þingmenn stór reykjavíkursvæðisins hafa í frammi í umræðu  nauðsyn miðstýringar stjórnsýslu og skipulagsmála mið-hálendis landsins og yfirtaka með þeim hætti skipulagsvald viðkomandi sveitarfélaga.

Og hver hefur ekki orðið var við að borgarstjórn Reykjavíkur hefur í frammi öfluga gæslu  svo litlar sem stórar ríkistofnanir verði ekki fluttar frá Rvk-svæðinu út á landsbyggðina.

Þetta ásamt svo mörgu, mörgu öðru, hefur orðið til þess að fólk á landsbyggðinni er að greiða fyrir farmiða á fyrsta farrými á íslensku þjóðarskútunni en er holað á þriðja farrými í skilningi opinberar þjónustu, hún er ekki fáanleg nema að greiða mikinn viðbótarkostnað hvort sem horft er til heilbrigðisgeirans, menntageirans, orkugeirans, menningargeirans eða annarrar þeirra þjónustu sem landsbyggðarfólk á rétt á. Dreifbýlisfólk þarf að virkja afl sitt til varnar hagsmunum sínum og hverfa frá langvarandi hugsjónaflótta.

 "---- Hvort lentuð þið þá í hálfvelgju, hikigildi-cloud_937956.png

og hugsjónaflótta, góðir menn?

Hefur viljinn, sem bjó í þeim dáðfúsum draumum,

sig dregið í skel fyrir vaxtarins straumum

 

Þeir svari, sem vilja. En sjá hér er landið !

Og sjá hér er fólkið ! Hvað vottast þar ?  ---"

(Jóhannes úr Kötlum)

Að þessu verður best unnið með því að líða neinn ekki órétt, og krefjast umræðu um byggðarmál og opinbera þjónustu ásamt með endurskoðun skattalaga með það í huga að jöfnun fáist í sköttum vegna ójöfnunar í þjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband