Miðvikudagur, 5. maí 2010
Hollendingurinn er enn fljúandi.
Hollendingurinn hefur rétt fyrir sér, við erum ábirg samkvæmt neyðarlögunum frá okt. 2008.
Það er sem margur landinn hafi ekki áttað sig á, að bankarnir keyrðu sig í þrot og settu heimsmet í glannaskap með beinni hjálp stjórnvalda sem dró ísl. efnahag niður að feigðarfeni.
Þetta var gjaldþrot bankakerfis undir stjórn stjórnvalda sem í framhaldi standa eftir hnípin og ráðþrota.
Ofangreind rök voru notuð fyrir setningu neyðarlaganna þar sem spariinnistæður í íslenskum bönkum, án hámarks, voru tryggðar af ríkissjóði og nú verða þeir sem áttu engar innistæður að borga innistæður miljónamæringanna sem komu í bankanna með ferðatöskur af stærri gerðinni, til að ná í sparpeninginn sinn í okt. 2008.
Sparireikningar í öllum íslenskum bönkum verða að lúta jafnræðisreglum stjórnarskrár, allt væl um annað er bara blaður og undansláttur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.