Mánudagur, 16. mars 2009
Úr gamla blogginu sem hvarf.
Hvað er þetta annað ?, Hafnfirðingar.
03.04.2007.
Sem jafnaðarmaður og lýðræðissinni frá barnæsku hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum á liðnum sólarhringum með þá umræðu sem annars svo innantómir og vælu skapandi ljósvakamiðlar hafa vakið ásamt og með núverandi og uppgjafa pólitískum piltum og stúlkum í þáttum sínum. Sjálfskipaðir vitringar hafa farið á kostum með málstað okkar sem voru meðmælt því deiliskipulagi sem um var kosið. Lista tónsmiður Gaflara, Magnús Kjartansson sagði okkur sennilega vera haldna elliglöppum. Sjálfur höfuðkratinn Jón Baldvin dáðist af heilbrigðri dómgreind andstæðinga tillögunar með mörgum fögrum orðum. Þar með var upphafið dómgreindarleysi okkar "hinna". Áttatíu atkvæða munurinn var upphaf nýs tíma Íslandssögunar að mati sendiherrans. Ég held hinsvegar að niðurstaðan sé upphaf harðari átaka um atvinnumál en nokkru sinni áður.
Já, já var einhver að tala um sættir, og allt yrði sem áður í Hafnarfirði. Já, vonandi verða sem flestir sáttir piltar og stúlkur í meirihluta bæjarstjórnar. En ég er ekki sáttur með vingulshátt ykkar í þessu máli og hræðilegt virðingarleysi ykkar við kjölfestu fyrirtæki Hafnfirðinga í marga áratugi. En ég vill minna á að skoðanakönnunin þarf formlega afgreiðslu bæði í bæjarstjórn og bæjarráði og þá krefst ég þess að þið öll gerið grein fyrir afstöðu ykkar til málsins. Ég kaus ykkur til starfa að stjórn bæjarins í nafni jafnaðarstefnunnar til að gæta allra hagsmuna bæjarbúa og fyrirtækja í nafni stefnunnar, en ekki öfga.
Ég var 1971 einn af stofnendum fyrsta náttúruverndar félags landsmanna og var í fyrstu stjórn þess, en hætti þegar öfgarnar helguðu tilganginn. En samt sem áður er ég jafn elskur íslenskri náttúru og hreinu andrúmslofti eins þessir grænu gaurar og stelpur, sem eru kannski grænir að utan en eru helrauðir að innan. Og minni "Framtíðarlandið" á, að Ísland verður aldrei grænt né grátt, það er og verður mórautt. Blágrátt í þeirra hillingum vonandi sem okkar hinna. Við "hin" sem erum dómgreindarlaus að mati Jóns Baldvins erum án efa jafnmiklir íslendingar og elskum íslenska náttúru og umhverfið eins þeir sem nú um stundir berja sér um brjóst og níða niður "okkur hin" í pólitískum tilgangi.
Allt þetta felur aðeins í sér að svara spurningunum um hvernig við finnum jafnvægið milli nýtingar auðlinda, álags á umhverfi og þarfa fólksins í landinu en ekki með þeirri þrætubókarlist sem sjálfskipaðir verndarar umhverfisins með heilbrigðu dómgreindina hafa haft í frammi með slíkri væmni að flestum verður flökurt af sem nenna að hugsa. Það eru til fleiri litir en hvít og svart. Hvað er annars þetta annað , sem á að gefa okkur 600 mkr. í bæjarsjóð í staðinn?.
Og nú flyt ég til þín þessi alvöruorð,
Sem mitt ættarland hvíslaði að mér.
Ekki einungis bindur ósk þess við borð,
lífið allt krefst hins sama af þér.
Hvað er ég? Hvað ert þú? Hvað er hún? Hvað er hann?
Sama hönd, sama önd, sama blóð.
· Að slá skjaldborg um réttlætið, maður við mann, það er menningin, íslenska þjóð! (Jóhannes úr Kötlum)
Erling Garðar Jónasson.
Get ekki orða bundist.
16.01.2009.
Sé forystan ónýt til boðs eða banns skal byggja á sjálfsdáð hins einstaka manns. Ef afveg er stýrt fram til ystu þramar, ef allsherjar-skipun bælir og lamar, á héraðið vald, milli heiðar og sands. Sé almúginn sínum foringjum framar, er festa hans vígsins síðasti hamar. Vaknaðu, reistu þig, lýður míns lands." (Einar Benediktsson)
Ég hef ekki lagt í vana minn að rita aðfinnslugreinar um verk minna ástkæru stjórnmálamanna, sem vegna einstakra kosta sinna og manngildis eru fremstir sinna jafningja, og þessara eitilhörðu Arnarhólsstráka og stelpna sem fylgja orðið foringjunum eftir að stólum hinnar eilífu ellilaunahamingju sem ráðherra-stóllinn er.En fyrir lýðræðissinna sem mig og mína líka, er það harakiri" sálarinnar að viðurkenna að slíkar gæskur séu skammsýnar og villugjarnar sem við hin.Við höfum lengi trúað að það séu blessaðir embættismennirnir sem hafi hlutverk púkans á fjósbitanum og gæskurnar þurfi á því einu að halda frá okkur að við herðum mittisbeltið og séum svo vammlausir að fjósbitafólið sé sífellt kveðið niður. En, svo þegar krosstré ráðherrastólanna sem gæskurnar okkar ríða á eru við að bresta vegna þess að sitjandi stólsins og meðreiðar sveinstaular og stúlkur íþyngja máttarviðum með andvara- og aðgerðaleysi, bergmála brestirnir í sálarkytru okkar nytsamra sakleysingjanna og skapa eyrnaverk, tannverk, magaverk og að lokum hausverk, síðan sálarverk tómleikans,sem kemur af að hafa tapaðglæpnum" og skynja að varnarstríði sjálfstæðis baráttu okkar fámennu þjóðar sé á vonarvöl.
Og -, þjóðin spyr, hvað er að hjá stjórnendum þessa lands sem sigla að virðist þjóðarskútunni á sker hvert annað andartak á söguskeiði lýðveldistímans, á og eftir mestu góðærum þeirrar sögu.
Auðvitað fyllist þjóðin kvíða nú sem áður, og Arnarhólsfólkið okkar auðvita líka. Tjónið af strandi þjóðarskútunnar getur hæglega farið yfir 2000 miljarða króna og strandgóssið er sennilega verðlítið . Auðvitað sitja eftir eignir um allt höfuðborgarsvæðið sem Mattador leikir bankana gáfu, svo sem 50 miljarða tónlistar höll. Varla er þó að reikna með miklum arði af slíkum verðmætum í bráð.
Og kvíðakrankleiki þjóðarinnar er nú að nálgast hámark, því það virðist ekkert vera að gert á hriplekri þjóðarskútunni, aðeins tappað í nokkur göt, vissulega við kjölinn, meðan fossar inn og út um stórar rifur á þilfari undir fótum átta-villtra og ráðalausra skipstjóra og stýrimanna hans. Já, púkarnir á fjósbitanum eru margir, en það sem verst er og um leið ástæða þessara skrifa, er sú augljósa staðreynd að vegna upplýsingastefnu stjórnvalda virðist sem engin viðleitni finnist hjá ríkisstjórn minna ástkæru stjórnmálamanna, þessara mætustu manna og kvenna okkar litla þjóðfélags til að axla sína pólitísku ábyrgð og taka að sér að breyta þessu rugli, þessu skrípi, sem heitir efnahagsstefna íslenska ríkisins. Af hverju ekki verðstöðvun á opinbera geirann?, eins og 1988, sem hluta nauðsynlegrar þjóðarsáttar sem auðvitað er nauðsynlegt að náist nú eins og þá. Er það kannski vegna hræðslunnar við að - hjásetarnir, - atvinnurekendur, verkalýðs hreyfing, banka-valdið og stjórnendur hinna munaðarlausu" fyrirtækja ríkisins (þ.e.víst fyrirtæki okkar landsmanna), fara sínu fram og fari sínar leiðir þrátt fyrir að settar væru leikreglur með lögum, og bókstaflega gerðu grín að ríkisstjórninni og settum lögum eins og útrásarvíkingar og einkabankarnir komust á lag með að gera vegna veikleika eftirlitsaðila stjórnvalda á næstliðnum árum.Já - púkarnir eru mættir í algjöru algleymi, rústa á sjúkrahúsa kerfið, farið verður að heimta aðgangseyri við innlögn á sjúkrahús, skattar og verðtryggingar tengd gjöld hafa verið hækkuð. Innlendar landbúnaðarvörur hafa hækkað um 30%-40% s.s. ostar, brauðálegg ofl, því framleiðendur telja sér fært að feta í fótspor landsfeðrana og segja, fyrst að þeir stíga þessi spor, þá fetum við í spor þeirra.Og fólkið spyr, er virkilega nauðsynlegt að halda hinum almenna launþega, launtakendum lífeyris og lántakendum langt fyrir neðan sultarmörk þegar flestir eru þá þegar sveltir til andlegrar og líkamlegrar heljar, fyrir okurvaxta Hrunadans og peningapúkastefnu Ólafslaga og öðrum svívirðilegum aðgerðum peninga-páfa" þjóðarinnar, s.s. framhald okurvaxta sýnir ?. Já - púkarnir á fjósbitanum eru margir og vissulega er erfitt fyrir ríkisstjórnina að kveða fólin niður en það verður hún að gera til að standa undir nafni. Ríkistjórnin hefur nokkra sagnfræðinga innanborðs, en sem betur fer ekki marga hagfræðinga. Skipstjórinn ætti að biðja þá, þ.e. sagnfræðingana, að skoða hvernig Svíar komust efnahagslega sterkust þjóða frá heimskreppunni 1929-1932. Wigfors kenningin segir einfaldlega betra að ríkisjóður framleiði eldspítur sem seljast og veiti atvinnu, en að fylgja kapítalískum óreiðukenningum sem ævinlega fara með lífskilyrði þjóða á ystu nöf með jöfnu millibili.Farið nú að stjórna vitrænt gæskurnar, forðist Sturlunga og burtu með svartnættið, uppþot, niðurrif og nornaveiðar á saklausu bankafólki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.