Þriðjudagur, 17. mars 2009
Prófkjörið kjánalega hjá Samfylkingunni í kraganum.
Frá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi
Fundur haldinn í stjórn kjördæmisráðs og kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi 16. mars 2009 í Hafnarfiðri vegna framkominna athugasemda um framkvæmd prófkjörsins 12. - 14. mars síðastliðinn. Farið var ítarlega yfir framkvæmdina og var einhugur um að öllum leikreglum hafi verið fylgt í þaula. Utankjörfundaratkvæði voru alls 259. Þar af voru metin gild 112 en 147 voru ekki á kjörskrá. Stjórn Kjördæmisráðs Samfylkingarinnar staðfestir niðurstöður prófkjörsins.
Það sem ég sá gerast á kjörstað.
Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað var ekki framlögð eða aðgengileg kjörskrá fyrir stuðningsmenn og kjósendur Samfylkingarinnar til skoðunar í aðdraganda prófkjörsins. Áhugasamir væntanlegir kjósendur urðu hinsvegar að gefa sig fram og spyrja um hvort þeir hefðu kosningarétt, en frestur til að spyrja um réttarstöðu rann út þrem dögum fyrir kosningar.
Þar sem ég sat ánægður og glaður á kjörstað og naut kleinunnar og kaffisopans sem mér svo höfðinglega var boðið að njóta eftir að ég hafði valið á milli alls þessa frambærilega unga fólks sem í boði var, sá ég til kjósenda sem afhent var umslag af kjörverði til að setja kjörseðilinn sinn í og ég sá hann líka setja seðilinn í umslagið og skrifa eitthvað á umslagið, sennilega hugsaði ég, er maðurinn að ganga frá utankjörstaða atkvæði fyrir Reykjavíkurkjördæmi. En, eitthvað er þetta skrýtið hugsaði ég, hvers vegna fær maðurinn þá ekki tvö umslög svo tryggð sé kosningaleynd.
Sannleikselskur flokksbróðir minn upplýsti á leið okkar frá kjörstað út af öllum mínum hugleiðingum, að kjörstjórn bæri svo mikinn kærleik í brjósti til kjósenda að ef þeir væru ekki skráðir á kjörskrá skildu þeir samt sem áður fá að kjósa svo myndi talningardeild kjörstjórnar ákveða afdrif atkvæðisins.
Ég spyr, eru við að upplifa einhverja komma aðferð við framkvæmd kosninga hjá minni kæru Samfylkingu?.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.