"Hvort skræfa hann var eða skálkur" Júdas Símonarson?.

Rán­yrkja felst í því að gæði jarðar eru of­n­otuð svo að þau endur­nýjast ekki, segja hinir hrein­lífu.

Hvers­vegna berjast þá náttúru­verndar­menn á Ís­landi fyrst og síðast gegn nýtingu endurnýjan­legrar orku. Ekki er það rán­yrkja!.

Skildi það vera vegna þess hún færir þjóðinni grund­vallar­auðæfi?.

Skildi það vera vegna þess að orku­iðnaðurinn  er verðugur and­stæðingur og hag­kvæmt er að hafa við hann þrætu­bók.

Þangað er hægt að sækja aur í meiri og meiri rannsóknir á líf­ríki landsins með  óbil­gjörnum kröfum, láta látum og brigslum.

Sam­kvænt fjár­lögum kostar það ríkis­sjóð um 3miljarða króna á ári að halda úti allskonar náttúru­eftir­liti með okkur sem erum illa inn­rætt og óheiðar­leg og fá okkur til að öðlast betrun og gera yfir­bót.

Þetta er sama upp­hæð og kostar að reka Stykkis­hólms­bæ í fimmtán ár.

Heldur hefði ég viljað sjá þessa aura fara í músík hús í Reykja­vík á hverju ári.

Skil­greiningin um hvað er náttúru­vernd getur aldrei gert manninn að áhorf­anda, maðurinn er hluti náttúrunnar og verður þess vegna að njóta verndar vegna sinna hags­muna.

Átök átaka hópa um stöðu mannsins í náttúrunni, sýnir því veru­legan menningar­mun en ekki meiningar­mun byggðan á rök­rænni hugsun.

Við mennirnir erum með marga djöfla í drætti hvort sem við erum hrein­líf eða ekki og erum þannig enn sett undir stóra dóminn í fyrstu Móse bók?. Þar sem við, fjöl­skyldan frá Eden var dæmd til að þurfa að streita í sveita ok­kar and­lits í nátt­úr­unni og með erfiði af henni að nærast alla ok­kar erfiðu líf­daga.

Auð­vita er þetta staðan, spyrjið  Herra biskup sem fékk svar frá hjarta um vera á móti Fljóts­dals­virkjun, þetta er virki­lega dómurinn sem við fengum í Eden, flóknara er það ekki.

Umræðan um Fljótsdalsvirkjun sem slík var ósköp venjuleg íslensk þrætubók, ekki um efnisatriði, heldur listina að þræta og hefur ekkert með sanna náttúruvernd að gera. Halldór Kiljan skilgreindi þessa iðju sem mjög skemmtilega og mikla andans íþrótt.

Hreinir halda áfram að erfiða með þræturnar svo and­leg næring náist. Hreinir þurfa sitt and­lega og líkamlega fóður. Óhreinir skapa þetta fóður og munu áfram gera.

Herra biskup mun stað­festa það af hjartans sann­færingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband