Mánudagur, 20. apríl 2009
"Tvíefld þóðarsálin logar í endurreisnar vonum".

Ljóst er að núverandi aðstæður og rugl í peningastefnu málum, krefja landsfeður og mæður til mikils hugarflugs um atvinnustefnu til framtíðar.
Svigrúm hefðbundinna atvinnugreina til aukningar á atvinnutækifærum eru mjög takmarkað.
Staða sjávarútvegs er slík að vart er þess að vænta að þar verði mikil nýsköpun og fjölgun tækifæra, sama niðurstaða er sjáanlega í landbúnaði og ferðaþjónustu.
Byggingar og framleiðsluiðnaður eiga og munu hafa í vök að verjast.
Spurningin er hvar eru tækifæri fyrir okkar unga og velmenntaða fólk í næstu framtíð?.
Eru sjáanleg tækifæri fyrir t.d. verkfræðinga, viðskiptafræðinga, lögfræðinga í þessum greinum að öllu óbreyttu?. Svörin eru því miður neikvæð frá öllum sem um þessi mál fjalla.
Hvað er til ráða?.
Finnast engar lausnir neins staðar?.
Jú, sem betur fer byggjum við ríkt og gjöfult land. Við landsmenn og líka nýtingar menn náttúruauðlinda, bændur, sjómenn og virkjunarsinnar, hafa unnið eins orkan leyfir á hverjum tíma á hagrænan hátt, með hina hagrænu náttúruvernd í huga sem felst í að stuðla að hæfilegri nýtingu og koma í veg fyrir rányrkju eða spjöll á auðlindum og hlunnindum lands og sjávar svo að heimsathygli hefur verið vakin á okkar aðferðafræði og ríkidæmi.
Stjórnleysið efnahagsmála síðasta áratug og rányrkja útrásarvíkinga í peningahirslum bankanna eða taumlaus blekkingarvefur, draumsýnir og yfirboð náttúrulausra náttúruverndarsinna, má aldrei komast í þá aðstöðu að ræna af okkur sjálfræði og efnahagslegu sjálfstæði.
Sjáið þið til, hin almenni atvinnurekandi og launamaður sem eru krossfestir í óáran íslenskra peningamála mun aldrei framar ljá því hug eða heyrn að blekkjast af jarðsambands lausum yfirboðum og rugli framar.
Þjóðin býður eftir lausnum frá þeim vanda sem við er búið, það eru verkefni en ekki vandamál.
Þjóðin verður því nú að kjósa þá flokka sem hafa kjark til að taka rétt og vitrænt á atvinnumálum okkar, án óra og áráttusýki.
Það er verkefni þjóðarinnar 25. apríl 2009.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.