Laugardagur, 25. apríl 2009
Hvað viljum við uppskera í dag.
Við viljum breytingar frá tug ára stjórnmálaóreiðu á Íslandi.
Við þökkum forsjóninni, óþreytandi frumkvöðlum og því að við búum Ísland, við búum við verðmæti og við eigum öryggi, og við tökum undir í herópi Einars Ben:
Sé almúginn sínum foringjum framar, er festa hans vígsins síðasta hamar. Vaknaðu, reistu þig lýður míns lands.
Við erum vöknuð...!
Það er krafa allra landsmanna sem lifa við raunverulega jarðtengingu við fósturjörðina að stjórnmálamenn leggi af innantóma þrætubókarlist sem einkennt hefur íslenska stjórnmála umræðu allan lýðveldistímann og einhendi sér í raunverulega vitræna rökræðu um endurreisn og styrkingu varna í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Við viljum þjóðarsátt til að brúa okkur burt frá óreiðu fortíðar.
Við viljum stjórnmálamenn og konur sem kunna að greina hinn daglega vanda, kunna samræðulist stjórnmála, kunna að leysa það næsta óleysanlega með samstarfi og samræðu við hagsmuna hópanna í samfélaginu.
Að slá skjaldborg um réttlætið, maður við mann, það er menningin, íslenska þjóð! (Jóhannes úr Kötlum)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.