Viljum ekki vera í skerjagarðinum lengur.

Samkvæmt nýbirtri skoðanakönnun, 62% með aðildarviðræðum að ESB, 27% móti.

 

Maður hefur spurt og maður hefur kveðið á við aðra, er ekki þjóðarnauðsyn að fá einhverja hjálp við stýrið á þjóðarskútunni?.

Stjórnendur okkar og  þessa lands okkar hafa siglt þjóðarskútunni á sker hvert annað andartak á söguskeiði lýðveldistímans, á og eftir mestu góðærum  þeirra sögu.

Þau þurfa einhverja góða lóðsa um skerjagarðanna.

Hinn pólitíski vandi hefur verið mikill, VG og íhaldið kalla bara Úlfur, Úlfur, ef minnst er á EB, og fullyrðingaflóðið og pólitíska hvít lygin streymir í Amason stærðum frá þessum frómu flokkum um alla gallanna, engir kostir, bara Úlfur, Úlfur.

Þetta er nákvæmlega  sama pólitíkin og þegar íslendingar völdu Dani fyrir skotskífu með skemmda mjölinu, til að hlúa að nauðsynlegri þjóðerniskennd. Úlfur, Úlfur.

Við getum ekki tekið afstöðu til málsins, án þess að vita um hvað málið snýst, kosti þess og galla.

En umfram allt viljum við vera Íslendingar, frjálsir og fullvalda og taka þátt í íslenskri sjálfstæðisbaráttu - baráttunni sem aldrei lýkur. Það verðum við alltaf að hafa fremst í huga.


mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband