Laugardagur, 31. október 2009
"Hvort skræfa hann var eða skálkur hann Júdas Símonarson"? II.
Hversvegna berjast þá náttúruverndarmenn á Íslandi fyrst og síðast gegn nýtingu endurnýjanlegrar orku???.
Ekki er það rányrkja!.
Er það vegna þess hún er rík og færir þjóðinni grundvallarauðæfi?.
Er það vegna þess að orkuiðnaðurinn er verðugur andstæðingur og hagkvæmt er að hafa við hann þrætubók.
Þangað er hægt að sækja mikla peninga í dýpri og meiri rannsóknir á lífríki landsins með óbilgjörnum kröfum, láta látum og brigslum.
Samkvænt fjárlögum kostar það ríkissjóð um 3-4miljarða króna á ári að halda úti allskonar arfavitlausri náttúruvernd. Til viðbótar er svo kostnaður við rekstur æðstu stjórnvaldsstofnanna á þessu sviði.
Áróðurstríði lobista og undirherdeilda þeirra náttúrulausu er háð án hiks með rangtúlkun, falsi og virðingarleysi gagnvart vinnu og vísindum okkar færustu orku og umhverfisverkfræðinga, sem margir hverjir hafa aflað sér alþjóðlegrar viðurkenninga í sínu fagi.Tilgangurin helgar meðalið, tilgangurinn er að fá greiddan herkostnaðinn,
3-4 miljarðar króna er er verðmiðinn. Þetta er sama upphæð og kostar að reka 1500 manna bæjarfélag í fimmtán ár.
Heldur hefði ég viljað sjá þessa aura fara í músík hús í Reykjavík á hverju ári.
En náttúruverndarar halda áfram að erfiða með þræturnar svo andleg næring náist.
En náttúruverndarar þurfa sitt andlega og líkamlega fóður.
Við náttúrunýtendur sköpum þetta líkamlega fóður og munu áfram gera eins og okkur var ætlað í fyrstu bókinni hans Mósefs.
Skilgreiningin um hvað er náttúruvernd getur aldrei gert manninn að áhorfanda, maðurinn er hluti náttúrunnar og verður þess vegna að njóta verndar náttúrunnar vegna sinna hagsmuna.
Við mennirnir erum með marga djöfla í drætti hvort sem við erum hreinlíf eða ekki og vorum þannig sett undir stóra dóminn í fyrstu Mósefs bók?.
Þar var fjölskyldan frá Eden dæmd til að þurfa að streita í sveita síns andlits í náttúrunni og með erfiði af henni að nærast alla okkar lífdaga.
Auðvita er þetta svona, spyrjið bara biskupinn sem fékk svar frá hjarta um vera á móti Fljótsdalsvirkjun, svona er dómurinn sem við fengum í Eden.
Flóknara er það ekki.
Herra biskup mun staðfesta það af hjartans sannfæringu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.