Að hafa yndi af heimatilbúnum vandamálum og atvinnuleysi.

Neyslan stefnir í kjötfars og Ora fiskibollur, meðan Ísland brennur!.

Peningamálastefnan er að skila því að háir vextir haldi peningum í landinu, en af því að þeir eru  háir eru þeir bara á bankabókunum. Ég fæ ekki séð hvernig bankakerfið getur gengið upp við þessar aðstæður. 

Í Hagsjá Landsbankans kemur fram að fólk og fyrirtæki kjósi fremur að spara en eyða og því aukist innstæður hratt.

Kerfið gengur þá fyrst upp að leigugjaldi peninga bankanna sé stillt í hóf í grænum hvelli og þá sé farin Japanska leiðin í stað þess að horfa í gaupnir sér og hafa yndi af heimatilbúnum vandamálum og atvinnuleysi.

 


mbl.is Yfir 30% samdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband