Þjóðfundur um framtíðarsýn Íslendinga.

515006.jpg„Hvaða lífsgildi eiga að vera okkur leiðarljós í þróun samfélagsins?"

Viljinn til góðra verka við nýtingu auðs og afls er allt sem þarf virðulegir þjóðfundar fulltrúar.

Fremsta krafa landsmanna  er auðvitað að auka hag sinn - efla menningu sína - skapa börnum sínum þau skilyrði til hugar og handar að sambærilegt sé við það besta í samfélagi þjóða í nútíð og framtíð. En umfram allt viljum við vera Íslendingar og taka þátt í íslenskri sjálfstæðisbaráttu - baráttunni sem aldrei lýkur.  Við viljum taka þátt í að brjóta hverja þá ógnaröldu er á þjóð okkar kann að skella - eins og harðar bergnasir okkar sæbröttu strandar brjóta þungar og svalar öldur Atlantshafsins. Við verðum líka að efla samkennd og réttlæti með þjóðinni, milli byggða og milli manna - og þjóða.

En eins og fram kemur í erindi þjóðskáldsins hefur okkar fallega gjöfula land með fallvötn, jarðhita, gjöful fiskimið og gróðurmold hvíslað að honum sínar kröfur og bendir okkur á leiðir:

Og nú flyt ég til þín þessi alvöruorð,

Sem   mitt ættarland hvíslaði að mér.

Ekki  einungis bindur ósk þess við borð,

lífið allt krefst hins sama af þér.   

(Jóhannes úr Kötlum)


mbl.is Þjóðfundur um framtíðarsýn Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband