Fimmtudagur, 19. nóvember 2009
Undir koddann með spariféð gamlingjar.
Nú er hagkvæmast að að geyma sparifé undir koddanum!!!!!!!!.
Auðvitað er eðlilegt við núverandi aðstæður að hækka skatta á tekjur af arðgreiðslum af fyrirtækjarekstri eða verðbréfum, en vandinn er bara sá að verðbætur vegna rýrnunar höfuðstóls sparnaðar er taldar fjármagnstekjur og með hækkun í 18% þá verða jaðarskattar á sparifjár inneigna í bankakerfinu langt yfir 100% og ávöxtun sparnaðar verulega neikvæð.
Því til viðbótar er eðlilegt að benda á skerðingar áhrif á lífeyrisgreiðslur aldraðra og öryrkja.
Já ósvífnin ríkisvaldsins gagnvart þeim, er en og aftur ótrúleg.
En ekki er það ekki nýtt af nálinni á liðnum árum.
Neyðarlög voru sett 6. okt. 2008 til m.a. að vernda sparnað, við höfum líka verðtryggingar lög frá áttunda áratugnum til að vernda sparnað.
Á svo að búa við skatta fyrirkomulag sem vinnur gegn sparnaði vegna skattlagningar verðbótarþáttar í höfuðstól sparifjár?.
Þetta er ekki hin tæra snilld góðrar stjórnsýslu.
Hafa áhyggjur af kjaraþróun fólks með meðalháar tekjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.