Mánudagur, 30. nóvember 2009
Mikið óskaplega tekur langann tíma að moka Sjálfstæðisflórinn í Icesavefjósinu.
Það er ekki fyrirhafnarinnar virði af Jó-Gríms stjórninni að moka Sjálfstæðisflórinn, sem er barmafullur af skít og drullu eftir átján ára samansöfnun, þegar sjálfstæðismenn, með að sjálfsögðu en og aftur góðri aðstoð framsóknar, bæta jafnan á þegar glittir í gólf.
Var ekki undir forystu sjálfstæðismanna samþykkt neyðarlög voru sett í október 2008 sem m.a, fólu í sér óheftar innistæðu tryggingar ríkisins á öllum innistæðum í íslenska bankakerfinu, í mörgum tilfellum innistæður upp á hundruða miljóna króna sem m.a, allskonar viðskiptajöfrar höfðu haft að launum eða þóknun og kvótabraski frá helmingaskiptaflokkunum Framsókn og Sjálfstæðisflokki.
Hvað segja þeir skattgreiðendur nú, sem áttu engar inneignir í banka vegna skattaáþjánar og annars álags frá klíkum samfélagsins, en þurfa nú að leggja á sig enn meiri áþján en nokkru sinni áður til að greiða innstæðu fjármagn innlendu millana, án hámarks, með sköttum sínum nú og í næstu framtíð.
Icesave bankinn var íslenskur banki, það fer ekki milli mála jafnvel hjá mest trénaða Sjálfstæðismanni og í öllum bænum tengið ykkur við gott jarðsamband þið svífandi gerendur hrunsins á Íslandi, Sjálfstæðis og Framsóknarmenn.
Verður að klára Icesave af ótilgreindum ástæðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.