Föstudagur, 4. desember 2009
Er stjórnarandstaðan að ljúa að þjóðinni?.
Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík segir að nettóskuldastaða þjóðarbúsins sker sig engan veginn úr þegar litið er til annarra landa,
Svo koma eignir á móti og það skiptir máli hvernig vinnst úr þeim og hvernig greiðslur falla til og hvort við getum skipulagt þetta þannig að við getum ráðið við þetta," segir Friðrik Már. Hann nefnir danska FIH bankann sem dæmi um ágæta eign sem ekki megi gleyma þegar rætt sé um skuldastöðu ríkisins.
Friðrik Már bendir jafnframt á að Actavis og Exista standi undir um 100% af skuldum þjóðarbúsins. Það sem skipti máli sé hins vegar staða opinberra aðila og lykilfyrirtækja, svo sem fyrirtækja sem starfa á sviði samgangna og fjarskipta.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.