"Icesave-málið, er erfitt og hörmulegt" segir Steingrímur.

495093a.jpg

Tilvistarkreppa íslenskra stjórnmála var og er m.a. sú að  forystumenn sjá ekkert annað en vandamál, tala aðeins um vandamál. Það má ætla að þá dreymi líka um vandamál, sem sagt þrífast á að skapa vandamál.

 Jafnvel þeir sem fremstir eru meðal jafningja í stjórnmálaelítunni muna ekki stundinni lengur, eftir að þeir eru komnir inn á Alþingi, að erindi þeirra þangað var að leysa úr flækjum mannlífsins, en ekki að flækja það frekar.

Í Guðanna bænum hættið þessu væli ráðherrar góðir og vænir, brettið upp ermar og komið ykkur að verki, verið ekki þær mýslur að láta stjórnarandstöðuna hafa endalaust verkstjórn með hendi, ekki hafa verk þeirra hingað til orðið þjóðinni til annars en stórtjóns.


mbl.is „Icesave erfitt og hörmulegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband