Þriðjudagur, 9. júní 2009
Yfirklór, svindl, -samráð og svínarrí olíukaupmanna.
Siðferðisskert viðskiptalíf íslendinga er á því stigi að ríkið má ekki hafa forystu um verðhækkanir. Þetta eru algild sannindi sem hver meðalgreindur pólitíker þekkir til.
Þess vegna spyr ég aftur og aftur, af hverju er reynsla verðbólgubana atvinnulífsins frá 1989 ekki notuð til að vísa til vegar og hægðarauka í núverandi rugli og vegleysi stjórnmála landsmanna.
Árið1988 var sett á verðstöðvun á opinbera geirann og í kjölfarið komst á þjóðarsátt sem skilaði kraftaverki í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Leysa úr flækjum mannlífsins er verkefnið, ekki að flækja það frekar. setjið á verðstöðvun og verðlagseftirlit. Það er það eina sem fær stöðvað þessa þrjóta.
Sjáið og lesið svarið frá frægum snillingum sjálftökunnar í fréttinni og áður;.
Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segir eðlilegar skýringar á þessu og að fyrirspurn neytendastofu sé byggð á misskilningi. Olíufarmar séu tollafgreiddir til bráðabirgða og vörugjaldið greitt einu sinni í mánuði í hlutfalli af sölu
Hann segir það vera þannig að ríkið breyti sinni verðskrá samdægurs. Fyrirkomulagið hafi verið svona og menn hafi ekki talið sanngjarnt að eitt fyrirtæki á markaði hafi forskot með því að eiga birgðir. Hann segir þetta fyrirkomulag hafa verið sett á fyrir mörgum áratugum og hafi ekki valdið misskilningi fyrr en núna.
Milljónir endurgreiddar og gefnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:55 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.