Miðvikudagur, 10. júní 2009
Þýfi gefið til góðgerða af Hróa Hetti hjá N1.
Það má finna til með manni sem er haldinn slíkum hroka sem forstjóri N1 hefur í frammi þegar hann svarar fyrirspurn varðandi áætlaðan þjófnað félagsins á 25 miljónum króna frá sínum viðskiptavinum.
Hann getur ekki óátalið gefið hluta þýfisins, því þá eru þiggjendur gjafar orðnir samsekir.
Slíkur gjörningur væri þó í samræmi við það viðskiptasiðferð sem ríkir hjá N1 undir stjórn þessa snillings.
Auðvita átti hann strax að tilkynna endurgreiðslu með afsökunarbeiðni og brosi á vör.
Við landsmenn erum reið en líka mjög illa leið yfir að viðskiptalífið virðast ekkert hafa lært þótt það hafi skapað allgjört svartnætti og fordæmingu hjá og á íslenskri þjóð með sínu lága viðskiptasiðferði og flumbrugangi.
Í Guðanna bænum ekki meir, ekki meir Manni minn !!!!!!!!!!.
Gefur lítið fyir samræmiskenningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.