"Sjáið þið hvernig ég tókann" ismin.

484421.jpgLilja hefur undarlega gaman að mála skrattann á vegginn, svo gaman að þegar hún kynnir sín válegu tíðindi fer hamingju hríslun um andlit og augu.

Ég held jafnvel svo komið að  andleg heilsa þingmanna almennt sé farin að kárna verulega.

„Það sem mér fannst einna áhugaverðast var að fulltrúar Seðlabankans skyldu viðurkenna að það yrði mikil lífskjararýrnun á næstu tveimur árum," segir Lilja Mósesdóttir"  

Þetta getur ekki verið einhver nýr sannleikur fyrir Lilju, því þjóðin öll hefur fyrir löngu fengið þennan boðskap í æð og hamrað niður í sálartetrin  af tveim síðustu spám Seðlabanka. 

Eða er það hennar sannfæring að venjulega séu allir að ljúga að henni. Hvað er um að vera hjá Lilju?.

Svart hvíta ruglið við Austurvöll mun ná til áður óþekktra hæða og lágengi íslenskra stjórnmála mun nálgast núllið ef sem nú horfir.

Hvað svo félagar?.


mbl.is Viðurkenna lífskjararýrnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband