Þriðjudagur, 17. nóvember 2009
Eignarskattur, nei og aftur nei ekki meiri margföld skattlagning á aldraðra.
Hvaða rugl er þetta, Það er eins gott að Mogginn minn er ekki að fullyrða neitt, hann bara spyr í þetta sinn í stað hefðbundnar véfrétta aðferðar þegar ríkisstjórnin á í hlut.
Ljóst er að ef af verður þá er ekki afgangur fyrir kjötfarsi eða Orra fiskibollum, hjá öldruðum á Íslandi.
En það er afar mikilvægt er að fá upplýsingar um hvort það sé skipun frá AGS að ná jafnvægi á ríkissjóð á tæpum þrem árum, eða er það metnaðarmál stjórnvalda að svo skuli vera.
Sama hvor er, lýðnum er stillt upp á bjargbrún.
Já þetta verða þrælslegar viðbótar álögur á eldri borgara, ef af verður.
Ég trúi því ekki að fyrsta "hreina vinstri stjórn" íslendinga geri sjálfan sig að hreinu viðundri í sögu lands og þjóðar með svo arfa vitlausri skattlagningu.
Verður eignarskattur endurvakinn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.