Föstudagur, 27. nóvember 2009
Alþingi verður að vinna til virðingar á ný.
Það er sagt að Alþingi njóti lítillar virðingar og þingmenn virðast á sama máli.
Ef marka má orð Þráins Bertelssonar og fleirri á Alþingi í gær er það ekki að ástæðulausu. Þráinn sagði umræðuna í þingsalnum markast af skætingi. Á Alþingi Íslendinga er "hávaða og heimskuópum" ruglað saman við "hina göfugu list: frammíköll," sagði Þráinn þegar hann kvaddi sér hljóðs við háværar umræður um formið á umræðum Alþingis um Icesave-málið. Margrét Tryggvadóttir, þingkona Hreyfingarinnar sagði; "Ég hef fylgst með umræðu hérna á kvöldin og mér hefur fundist átakanlegt að horfa á ráðherrana okkar. Þeir eru orðnir úrvinda og þreyttir. Ég held að þeir hafi ekki gott af næturfundi."
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.