Mótmælin á Austurvelli í dag.

179799a_941937.jpgÁ síðustu öld, seinni hluta, voru skuldaskil landsfeðra og útgerðar/fiskvinnslu nánast árstíðarbundin aðgerð, veðbönd sá ég á 45 veðrétti.

Þetta gerðu landsfeður að eigin sögn af neyð. Landsfeður og mæður eiga ekki að spyrja okkur, almenning, um hvað eigi að gera, þegar við erum að benda hvað þarf að gera. Þau eru valin af okkur til að gera það sem þarf að gera, sérstaklega  ef að líkur séu á að frumskógarlögmál verði neyðargrunnur almennings. Neyð krefst neyðarráðstafanna.

Neyðarlögin tryggðu inneignir í bankakerfinu ótakmarkað á kostnað skattgreiðenda, sem segir okkur að hugur þáverandi valdhafa hafi dvalið við meðaumkun til ríka fólksins í landinu, þá talaði engin um kostnað.

Lánveitendurnir hafa búið við axlabönd og belti, með alt sitt á þuru, búið við vaxtamun svo ríflegan að hvergi í heiminum fannst annað eins. Þeir verða einfaldlega að setjast niður með skuldurum og leysa málin með þeirri reisn sem þeim sæmir og þeirra framtíð byggir á.

Ríkistjórn, hefjist nú handa. Hysjið buxur lánveitenda upp. Lausn á skuldavanda heimilanna þolir ekki lengri bið.  

Hver vill bera kostnað af þeim blóðuga harmleik sem gjaldþrota fjölda heimil getur leitt af sér?. Það stendur upp á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að svara því með aðgerðum, væl dugar ekki lengur. Allar aðgerðir hingað til eru hrein sýndarmennska.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það verður lítið gert á meðan við sitjum uppi með forystulausa ríkisstjórn og landið í raun stjórnlaust.... þannig rekur okkur óþægilega hratt að feigðarósi, því miður.....

Ómar Bjarki Smárason, 12.12.2009 kl. 23:27

2 Smámynd: Erling Garðar Jónasson

Það er bara ennverra við erum við feigðarósinn þá þegar af annarra völdum, og það fastir á skeri og það sem er verst,það eru slagsmál í brúnni en ekki ró og friður til vitrænna aðgerða.

Erling Garðar Jónasson, 13.12.2009 kl. 10:26

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Verðum við ekki bara að finna einhvern sem er nógu stór og fyrirferðamikill að það sé bara rúm fyrir hann einan í brúnni. Þannig mætti e.t.v. koma í veg fyrir slagsmál.....!

Ómar Bjarki Smárason, 13.12.2009 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband