Sunnudagur, 20. desember 2009
Ekki hengja vín fyrir þingmann eða öfugt, eftir smekk......................................
Ég var orðin sáttur við Ögmund sem sem aldrei fyrr, þá sagði Kastljósið að Ögmundur hefði verið á kenderíi í þinghúsinu þann daginn. Þetta er bara einhver íhalds áróður blárrar fréttastofu, hugsaði ég, bara venjubundin nýting íhaldsins á fréttastofu RUV.
Ögmundur hefur aldrei verið eins skýr og í fréttaþætti RUV þennan dag svo skýr að ég skildi loks manninn, lygamerðir þarna í Kastljósi að hafa í frammi þá skýringu á skýrleikanum, ályktaði ég.
Svo hrundi sú skýring þegar sjálfur Björns Bjarnasonar segir " Sé Kastljós að segja hófdrykkju stríð á hendur er það virðingarvert, Hins vegar er ómaklegt, að Ögmundur Jónasson sé gerður að blóraböggli í því stríði." en bætir svo við í sinni alkunnu menningarleit "Hitt er jafnframt staðreynd, að áfengisneysla hefur tekið á sig þá mynd, að skálað er í vín- eða bjórglasi með mat í hádegi, ef svo ber undir, og einnig má sjá hér eins og víða um lönd, að vinnufélagar fái sér bjórglas á kaffihúsi að vinnu lokinni,"
Sjálfur segist Ögmundur hafa fundið til áhrifa og ákveðið að fara ekki í viðtal af prinsipp ástæðum, enda alkunna að enginn er eins fastur í prinsippum og Ögmundur á þingi.
Sigmar ætti semsagt að skammast sýn segja menn, öruvísi en mér áður brá bindindismenn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.