Rík er vor fósturjörð af yl og öðrum gæðum.

517416a_944045.jpgMikið má maður vel við una, þrátt fyrr allt, þau gæði sem skaparinn veitti okkur með að búsetja okkur á eyju gnægta orkuauðlinda nyrst í ballarhafi  með gnótt fiskjar en þó furðu mannvera á þura partinum, sem aldrei hafa getað stýrt varanlega sinni velferð eða kunnað að þakka með auðmýkt fyrir  skaparans góðu gjafir, en hafa endalaust gaman af Sturlunga stríði sín á milli.
Nú er -16°C í Köben, það setur í mig hroll og ég hugsa til fyrsta námsvetrar í Kaupmannahöfn fyrir næsta hálfri öld þegar Síberíukuldinn frysti allt vatn í óeinangraðri íbúðinni og ég lá undir sæng í ullarsokkum, í síð erma og leggja föðurlandi og með lambúshettu á höfði við að læra mín kver, skjálfandi af kulda, þrátt fyrir að eiturspúandi kakelovnen væri rauðglóandi í innveggjahorni herbergisins.

Tak fyrir fyrir mig kære ven.


mbl.is Síberíukuldi í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband