Jólaáheit.

Nú skal það ekki vera höfuðviðfangsefni þingmanna lengur að tala í kross og stunda þrætur við andstæðinga sína, nú skulu þeir fara að vinna og gera minnst tvennt í einu, ef ekki þrennt.

Samningsniðurstaða í Icesave-málinu er afleiðing óstjórnar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, þess vegna er eitt víst: stjórnarandstöðuflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, ættu  að sjá sóma sinn í að standa undir sinni ábyrgð, eða sitja hjá og þegja.

Núverandi ríkisstjórn hafði enga samningsstöðu í þessu máli. Ábyrgðin á þessu klúðri er ekki hennar, heldur forvera hennar. Stjórnarandstaðan (að Hreyfingunni undanskilinni) ætti því að sjá sóma sinn í að hafa hægt um sig á næstunni.



mbl.is Útiloka ekki að Icesave verði hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband