Föstudagur, 27. nóvember 2009
Siðvæðing samkeppnismála nauðsynleg.
Er einhver samkeppni við lýði á Íslandi?, ég spyr vegna þess að ég hef ekki orðið var við hana í mínum þjónustukaupum.
Það virðist engin kaupmaður vera í samkeppni t.d. við Bónus og eldsneytisokrararnir, bankar og flestir aðrir viðskiptajöfrar eru mjög samstíga í okri, samræmingu og samkeppnisleysi.
En nú þegar sveitarfélögin eru uppvís að hafa í frammi vinavæðingu með skattfé borgaranna og virðingarleysi á lögum um viðskiptahætti, virðist greinilega framkomið á hvaða stigi samkeppnismál eru á Íslandi, um þetta þarf engin að efast lengur.
Þess vegna má leggja niður Samkeppnisstofnun, hún virðist gagnlaus.
Rannsaka stuðning við Stáltak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.